Hljóðbókasafn

Leiðbeiningar um niðurhal af vefsíðu Blindrabóksafns Íslands


1. Farðu inn á http://www.bbi.is


Mynd 2

2. Smelltu á flipann Hljóðbókaleit og svo Innskráning


Mynd 3

3. Skráðu þig inn með kennitölu og lykilorði (sem þú færð hjá safninu), lestu skilmála og samþykktu þá og smelltu svo á Áfram.


Mynd 4

4. Nú ertu komin inn í hljóðbókaleit, sláðu inn nafn bókar sem þú ætlar að fá lánaða og smelltu á Leita. Einnig er hægt að afmarka leit eftir titli, höfundi, lesara, lýsingu, flokki og tungumáli.


Mynd 5

5. Nú getur þú valið um að hala niður, panta disk eða setja bók á minnislista. Smelltu á hnöttinn til að hala niður.


Mynd 6

Þegar þú hefur valið að hala niður birtist næsta skref mismunandi eftir því hvaða vafra þú ert að nota.

Í Firefox birtist valmöguleiki þar sem þú velur um að opna möppuna eða vista hana.


Mynd 7

Í Internet Explorer 9 kemur upp þessi mynd: smelltu á save eða open.


Mynd 8

Þegar þú hefur smellt á save geturðu séð það sem þú hefur halað niður:

Þá birtist þessi mynd, opnaðu möppuna:


Mynd 9

Mynd 10

Í Chrome birtist niðurhalið svona, þú getur dregið möppuna beint á skjáborðið héðan:


Mynd 11

Eftir að möppunni hefur verið halað niður getur þú hægrismellt á möppuna á skjáborðinu og afþjappað.

Veldu stað til að vista möppuna á og smelltu á Extract all files:


Mynd 12

Mynd 13

Mappan afþjappast og þú getur dregið hana inn í MP3 spilara, opnað bókina í Amis forritinu og fleira.


Mynd 14

Gangi þér vel




Hljóðbókaleit

Leita að bók
Innskráning
Nýjar bækur
Leiðbeiningar

 

Fyrirmyndarstofnanir 2011 - Minni stofnanir - 3. sæti

Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica